|
|
01.07.2008 02:05:54 / Vala
Greetings from L.A.....
Nuna eins og er er eg stodd i L.A. ad bida eftir ad fara a flugvollin og fljuga til NY. Jei eg er a leidinni heim, eg bara trui tessu ekki, tetta er alveg otrulegt folk, eg er ad koma til Islands i fyrsta sinn i 11 manudi!
Tetta ar er buid ad vera alveg hreint ut sagt frabaert, no regrets. Eg hef gert svo otrulega margt og tad er svo margt sem eg a eftir ad sakna til ad nefna nokkra hluti: - JAMBA JUICE....tad besta sem til er i ollum heiminum. - Odyrleika - Nordstroms Rack - York - Junior Mints - Ad keyra sierra - Max my little kitty! - Vedursins....tott at tad er agaet at vera ekki i 40 stiga hita. - Vina minna - Joel my best friend - Litlu saetu skiptinemarnir minir - Rockband - Ad tad se enginn texti og ekkert hle i bio! EG HATA HLE! - Edwards - Borders - Urban Outfitters - Forever 21 - See's candies - WASAABI! Shushi, o sushi hvad skal eg gera an tin - Teriaky Chicken - TACO BELL! - Sour Patch - VH1 - Og o svo margt margt fleira...eg segji ykkur bara fra tessu tegar eg kem heim eftir 1 DAG!
OMG OMG OMG OMG
Allt i lagi en nu verd eg ad drifa mig svo ad eg verdi ekki sein og vona ad tad se Jamba Juice a LAX tvi eg veit ekki hvernig eg get lifad an Jamba! Ohhhh en eg hlakka til ad sja ykkur oll, hringid i mig, myspace-id mig eda sms ef til viljid hitta mig komandi daga.
Hlakka til ad sja ykkur
Oskid mer gods langs flugs...actually two flights but whatever
-VALA AMERICAN
p.s. Eg er mjog sar yfir tvi hversu fa comment eg fek a sidasta blogg, tetta otrulega langa mynda blogg sem tok mig svo otrulega langan tima ad blogga og eina astaedan ad eg bloggadi var bara fyrir ykkur og svo bara enginn komment, onnur astaeta akkuru eg bloggadi ekkert eftir tad....
»
21.05.2008 23:21:18 / Vala
Jæja það er venjulegt blogg í þetta sinn, og langt það verður skal ég segja ykkur þar sem mikið er búið að gerast... - Nú er ýmislegt búið að gerast, /gradnight/leikrit/PROM/Yosemite Fyrst var leikritið þann 8. maí og það var samansafn af short plays, og ég var í tvem þeirra, í einu lék ég brjálaða ólétta konu og í hinu heimskan agent, í bæði skiptin fékk ég að öskra á sviði sem var mjög gaman  Allavega hérna eru nokkrar myndir...  Svona lít ég út ólétt....  Hadrien og ég...hann lég manninn minn sem var ekki faðir barnsins   Ég og einstaklega creepy Jack  Beware of a very angry Vala.....! Þá var þetta allt mjög skemmtilegt, en feginn að það sé búið, eða svona næstum.. - Svo fór ég í mjög skemmtilegt afmælispartý um dagin, John bauð mér í afmælið sitt á síðustu stundu þannig ég mætti, og hafði enga hugmynd um hvað ég var að koma mér í var þetta þá ekki Casino Themed party, mjög skemmtilegt, spilaði black jack og svona skemmtileg, tapaði einhverjum 300 dollurum....samt ekki alvöru, annars væri ég ekki að segja ykkur frá því  Allavegana doldið skemmtileg reynsla. - Svo sömu helgi (minnir mig) fórum við til Yosemite, sem er mjög frægur þjóðgarður hérna í Californiu og fólk allstaðar úr heiminum heimsækjir. Ótrulega fallegur staður, það var líka ógeðslega gott veður þar...nokkrar myndir  Ég með rosalegt útsýni í bakrunn...  Carolyn, Jeff og Ég  Fallegt útsýni  Ég og Jeff - Svo þann 15-16 maí var GRAD NIGHT! Í Disnleylandi og California Adventures sem var svo úber gaman. Ég mætti í skólan bara eins og venjulega svo komu rúturnar klukkan 2.30 til að pikka okkur up, það tók okkur kannski 5 klukkutíma að keyra þangað, við komum þangað um 8 eða 9 leitið. Í rútuni gáfu þau okkur svo mikið af junk food, eða það var risastór kassi fullur af nammi, kexi, og þannig hlutum og ég át all svaðalega mikið af því, ég var svo hyper fólk! Ég hef ekki verið svona hyper lengi...  Ég og Heather í rútunni...veit ekki hvort þið sjáið það í augunum hversu hyper ég er...  SYKUR  MEIRI SYKUR! Svo þegar við komum af staðin vorum við í Caliornia ADventures þangað til klukkan 12 og þá máttum við fara yfur í Disneyland og það var svo gaman, fórum í helling af tækjum, Peter pan, Haunted Manson, Pirates of the Carribean, Indiana Jones og mörg fleiri. Þau voru kannski ekki skemmtilegustu tæki í heimi en þau voru svo fokk vel gerð að það er ekki eðlilegt, sérstaklega the Haunted Manson, ekkert scary eða neitt þannig en það var bara svo ótrulega vel gert rosalega flott.... Svo foru líka dansgólf út um allt þannig að við dönsuðum einnig líka í einhvern klukkutíma eða svo. Svo klukkan 6 þurftum við að fara heim og allir sváfu í rútunni. Ég var samt ekki neitt þreytt alla nóttina, mjög stolt af mér, held að það hafi verið of mikill sykur í blóðinu... MYNDIR!  Ég í sykurvímu  Heather, Ally, ég og Juulia  Jasmine, ég og Ally H.  Heather, John og ég  John, ég og Kyle  PICTURE  Persónulegt uppáhald...Zalaha og Heather, og svo Kyle og JOhn bakvið hahahaha  YEAH  Ég og Zalaha  Allir að sofna í röð fyrir Haunted Manson...not really  Zalaha ownar þessa mynd  Allavega þá var Disneyland eitt af því allra besta sem ég hef upplifað hérna, svo ógeðslega gaman að ég vildi að þið öll hefður getað verið þar líka! - Svo daginn eftir Disneyland það er að segja þann 17. maí var PROM! YEAH! Dagurinn byrjaði þannig að ég vaknaði klukkan 9. fór í sturtu og gerði allt sem gera þarf fór síðan í neglur í fyrsta sinn á æfi minni  Það fékk manicure og pedicure, bæði neglur og táneglru. Mjög spes....hehe. Síðan Klukkan tvö fór ég í hár, á hárgreiðslustofuna þar sem ýkt næs stelpa gerði hárið á mér voða fínt. Ég kom heim um 4 leitið og planið var að hittast hjá Ally klukkan 6. Ég gerði mig voða fína, málaði mig fór í kjólinn og svona. Svo fór ég til Ally þar sem voru teknar myndir og svona....Ó gleymdi líka að segja hver endaði upp með því að vera date-ið mitt, en það var hann Joel besti vinur minn, ég basically skipaði honum að fara með mér því hann ætlaði ekki að fara og mig langaði ekki að hann missti af sínu senior prom. Svo klukkan 7 kom limman og sótti okkur og við fórum á Waasabi sushi stað og flest okkar átum sushi. Ég var svo svöng, það eina sem ég borðaði allan dagin var sellerí að ég fékk mér tuna roll og cherry blossom og svo át ég af disknum hennar jasmine. Svo eftir matin leið leiðin til Holland Park þar sem Promið okkar var sem var safari themed, by the way. Allt voða vel skreytt og svona. Þar var dansað til 11 en þá var Prom búið. Lame I know, allt of stutt. Eftir það fórum við heim til Ally og svo á in-n-out sem er hamborgara staður, vorum þar í smá tíma og svo fór ég Til Joels og við spiluðum grand thef auto til hálf þrjú...lame en hei that's how I roll... MYNDIR!  Ég...vildi óska þess að þið gætuð séð skónna mína alminnilega...Þeir voru AWESOME!  Ég og Joel...ég er svo mikið hærri en hann...HAHA..I'm so mean  Jasmine, Alex, Ally, Aybrey og Ég  Mér gekk eitthvað illa með að setja blómið á hann...það er helvíti flókið!  Ég og ALly  Carolyn og ég  Joel, ég, ALly og Carlos  Ég og Jasmine  Joel, ég, Sid og Carlos eftir Prom  Hahaha  Ofan í sundlauginni etir prom... þEtta var úber gaman, alveg eitt af skemmtilegustu hlutum sem ég hef gert hér  - Jæja núna að aðeins óskemmtilegri hlutum, ég ætla að tala um Djöfulinn aka Mrs. Honda....einn anstyggilegasti kennari sem ég hef kynnst á allri minni æfi, hún er ekki svona kennara mean, hún er bara mean. Henni finnst gaman að leggja nemendur í einelti og það vill svo skemmtilega til að ég er einn þeirra. Ég er nokkuð viss um að ég falli í Journalism, út af henni! Því hún er djöfullinn, hún sendi mig til aðstoðarskólastjórans um daginn fyrir Dresscode violations! Vanalega gefur hún viðvararir fyrst áður en hún sendir þau á skrifstofuna, en neinei ekki mér, hún sendir mig því að stutt buxurnar mínar eru of stuttar. Herðu ég bíð á skrifstofunni í klukkutíma og á meðan ég bíð by the way, ganga inn og út sirka 6 stelpur í styttir buxum en ég! Svo talar aðstoðaskólas´tjórinn við mig, skrifari eitthvað í tölvuna og sendir mig í tíma. Nú ég skil ekki alveg tilganginn á þessari bið. Ég komst líka að öðru að kennarinn getur sent þig á skrfistofuna fyrir hvað sem er, skitpir ekki máli hvað þú segir kennarinn hefur alltaf rétt fyrir sér, hún sagði það meiri segja við mig " We don't question teachers" Nú það þýðir að nemandinn hefur nákvæmlega enginn réttindi. Ég þoli Mrs. Honda ekki, henni finnst gaman að niðurlæga mig, ég virkilega hata hana! Ég get ekki beðið eftir að þurfa aldrei að sjá hana aftur! - Ég ætla allavega að hætta að blogga núna og ég vil helling af kommentum og ég ætla að setja myndirnar inn á...það á eftir að taka sinn tíma, það er ógeðslega mikið að gera hjá mér í augnablikinu. Gangi þér allt í haginn Bryndís mín! GO SPEEDRACER GO! kv. Vala
»
19.05.2008 05:40:32 / Vala
»
24.04.2008 03:12:43 / Vala
Annað Vlogg fyrir ykkur börnin góð...vona að þið njótið VLog 2Herðu svo eru hérna nokkrar myndir frá Hollywood!  Ég, Ally og Jasmine...  Það sést varla í Hollywood merkið þarna í miðjunni vegna mengunar!...pælið í því  Ég og Megan...magnaðasta mynd EVAH  Puppy eyes...how can you say no to these eyes...  Haha grænt tyggjó  Það varð að vera svona ein emo mynd...  Drullugóð mynd af hadrien...svo ótrúlega óhugnaleg samt! Herðu set restina a myndunum inn á þegar ég nenni...já ég er svo löt! kv. Vala Lata
»
10.04.2008 03:18:35 / Vala
Ég ákvað að breyta aðeins til og í staðin fyrir blogga ákvað ég að vlogga, taka eitt skref í átt að framtíðinni...segjið mér svo bara hvernig ykkur finnst er þetta of leiðinlegt, á ég að gera eitthvað skemmtilegra eða eitthvað þannig...
Njótið...
Ég að vlogga
Plís virka núna!
BÆ!
»
01.04.2008 04:37:26 / Vala
Nú veit ég ekki alveg hvernig ég á að segja þetta, ég skammast mín doldið mikið fyrir þetta... en allavega, hérna fáið þið söguna:
Allavegana þá er Bullard búin að vera aðeins strengri á mætingu upp á síðkastið, ef þú kemur seint 5 sinnum í skólan þá færðu Saturday school, já ég veit það er algjört kjaftæði, bandaríkja menn eru bara það. Og svo ef ég fæ 10 sinnum of seint þá er ég rekinn í 1 dag...og svo framveigis ef þið skiljið mig. Allavegana þá hefur Bullard verið doldið hörð að þessum reglum upp á síðkastið. Og ég kem og seint í skólan á nánast hverjum einasta degi en af einhverri ástæðu hefur verið horft framhjá mér þegar það kemur að Saturday school...
Ég man heldur ekki hvort ég sagði ykkur að ég væri að falla í tvem tímum, semsagt journalism (af öllum tímum) og Government (sem er helvíti erfiður)...
Vá ég veit ekki hvernig ég á að segja þetta....ég var semsagt kölluð inn á skrifstofu í dag, þar er Gail trúnaðarmaðurinn minn ekki með fallegan svip hún bara situr þar og ég sest niður líka og námsráðgjafinn minn segir við mig að ég sé fallin í Government og Journalism og það sé ekkert sem ég geti gert til að ná því upp...ó já man ekki hvort ég sagði ykkur en ég verð að ná Gov ef ég vil útskrifast! Plús svo segir hún við mig í þessum nákvæmum orðum “You’ve been comming suspisously late to school almost every day of the week in a long time, is there something you want to tell us?” Ég bara sit þarna og gapi og segji ekki orð bara “What do you want me to tell you, I’m just late.” Hún horfir á mig eins og hún trúir mér ekki í svona tvær mínútur svo loksins segir hún við mig “You can’t go to bullard anymore if you failed” og svo segir Gail með hálfgerðan sorgasvip á andliti sínu, eða útskýrir fyrir mér að ástæðan fyrir því að ég hafi verið rekin er út af því að ég er eiginlega “gestur” í skólanum ekki nemandi eða eitthvað álíka þetta var ótrúlega flókið og ég var bara það fokking upset að þetta fór inn um eitt og út um hitt. En allavega þá eina ástæðan yfir því að ég fæ að vera í bandaríkjunum í meira en 3 mánuði er út af þvi að ég er með student visa, en út af því að ég er ekki student lengur þá gildir visað mitt ekki heldur þannig, ég kem ekki heim 2. júlí heldur 7. apríl.
Ég er svo fokking reið að orð lísa því ekki, að enginn hafi gefið mér viðvörun yfir þessu eða vá....sorry ef þetta er eitthvað ólskýrt en ég er bara ekkert smá reið yfirþessu að ég get varla skrifað, útskýri þetta kannski aðeins betur þegar ég er búin að róast aðeins, en ég meina hvernig á ég að pakka allt helvítis draslið og kveðja alla á 4 eða 3 dögum...minna ég veit ekki, gail ætlaði að hringja seinna í mig til að segja mér meira um flugið og allt þetta...vá ég er svo reið. Ég fæ ekki að fara á prom, eða taka þátt í leikritunum í leiklist, eða útskrifast eða fara í Disneyland....ARG! Djö maður ég er svo pissed!
Allavegana þá kveðja ég í reiði minn, sé ykkur eftir sirka viku...plús hvað á ég að gera í 2 mánuði meðan allir eru í skólanum, ég meina ég er ekki að fara byrja aftur í kvennó þegar það eru 2 mánuðir eftir að s´kolanum...þetta er fokking lame....
Kv. Vala
Ó já bara minna ykkur á það að ég skrifaði bloggið 1. apríl!
»
29.03.2008 20:58:06 / Vala
Allt í lagi....
- Núna er ég ekki búin að blogga í u.þ.b. tvær vikur, og það er nú búið að vera slatti að gera plús þá er ég eitthvað slöpp í augnablikinu [Sem er nú ekkert nýtt, ég er alltaf veik!] En allavegana þá er páskafríið búið eða Spring Break eins og ameríkanar kjósa að kalla það vegna legal reasons...jebb því það eru ekki allir trúarhópar sem halda upp á páskana, það sama gildir um jólin, ekki jólafrí heldur Winter break.... - Margt gerðist í "Páskafríinu" Ég fór til Santa Cruz með Juuliu vinkonu minni, Santa Cruz er sonna collage town, og pínu hippalegur, en þar er einmitt UC Santa Cruz, og fyrir þá sem ekki vita hvað það er....aumingja þið! Campusinn er risastór og mig langar að fara þangað, skólinn er basically bara inn í risastórum skógi! Það eru nokkrir vinir mínir að fara þangað, þar á meðal besti vinur minn hérna  En ekki meira um háskólann, ég og Juulia tjilluðum bara í Santa Cruz, fórum á The Boardwalk (doliðd eins og tívolíið sem kemur í smáralindina nema bara 1000 sinnum betra) og eyddum tíma okkar á ströndinni....já fólk ég fór á ströndina. Allavega þá var þetta bara hin besta þriggjadaga ferð: Og nokkrar myndir....ég er svo geggjað dugleg að setja myndir inn á bloggin mín, ég held að það sé ekki eitt blogg sem er myndalaust!  Ég í fallturni, efst uppi....ekki jafn góður og í tívolíinu samt!
 Pínu in-your-face mynd...hehe
 Og þarna fyrir aftan mig sjáið þið The Boardwalk og ströndina í santa Cruz....by the way ég elska bolin sem ég er í 
 Og ég ligg í sólbaði ....já ég er í sólbaði á ströndinni í santa cruz....en eins og vanalega þá fæ ég engan lit á mig...DAMN YOU SUN!
 Svalasta mynd....
 Ég og Juulia...
- Herðu og að mikilvægari hlutum...Mars er afmælis mánuðurinn besta vinkona mín varð 18 og besti vinur minn hérna varð 18 einnig, tvær æðislegar manneskjur í kvennó Lára og Ásta urðu einnig 18 ára og svo varð ég 18...JEI!
Já ég varð nú 18 ára þann 18.mars 2008...svo kúl ég veit... daginn fyrir afmælisdaginn minn þá komu Juulia, Helena og Yoko til mín og við átum pizzu töluðum saman og þannig og svo fékk ég afmælisköku...fyndin saga á bak við það, við vorum við matarborðið og jeff fór framm og svo kom hann til baka með afmælisköku og það voru kerti á henni, herðu svo ætlaði hann að fara setja hana a borðið, hann var fyrir aftan mig...hann missti kokuna á mig...hehe, kakan bjargaðist og það kveiknaði ekki í hárinu á mér , hún var barasta mjög góð. Á afmælisdaginn minn fór ég nú bara að versla með Juuliu, keypti mér slatta í Urban og sonna og svo fór ég með henni, Jeff og Carolyn á The Cheescake Factory þar sem við átum delicious mat og geðveika ostaköku... En það sem ég er búin að fá í Afmælisgjöf hingað til, Ég fékk 90 dollara frá Jeff og Carolyn, Ég fékk 150 dollara útekt í Urban frá Siggu Svo fékk ég bol og Panic- Pretty Odd frá Joel, ég fékk Jamba Juice pakka frá Yoko, Jenny, Helenu og Juuliu, bók um hvernig á að gera mína eigin smoothies...nammi, svo ég eigi nú ekki eftir að deyja án Jampa Juice heima....Herðu svo fékk ég nýjan I-pod frá Mömmu og Pabba Sem ég elska mest af öllum í heimi, Ég þakka innilega fyrir mig bara 
Vala litli ameríkaninn ykkar er orðin 18 ára! Ég er orðinn fullorðin kelling...

- En svona pínu úr skólanum, þá gengur badminton mjög vel er búin að vinna alla leikina mína nema 1 , ég hata helvítis bolin í buningonum okkar, óþolandi helvíti....Herðu við fórum einmitt í myndartöku fyrir árbókina um daginn þar sem allt liði fór á einhvern herflugvöll til að taka myndina fyrir framan einhverju þyrlu eða eitthvað álíka...ekki beint eitthvað sem ég er spennt fyrir, við tókum myndina og svo kom Coach Teage með myndina á þriðjudaginn og sýndi okkur...SJitt, þetta er versta mynd ´sem hefur á allri ævi minni verið tekin af mér... Í fyrsta lagi þá stend ég út úr vegna þess að ég er svo hvít, það var vindur þannig hárið á mér er sleikt upp við andlitið á mér og augun mín er á milli að vera lokuð og opin, herðu svo eru axlirnar mína spenntar svo það er eins og ég sé ekki með háls og svo eru hendurnar á mér einhvernvegin þannig að ég virðist vera 50 kílóum þyngri en ég er! ÉG HATA ÞESSA MYND! Þið afsakið ég var bara að kvarta út af þessari helvítis mynd!
 Þyrlan sem við tókum myndina fyrir framan, ég hata toppin...en annars þa´er þetta ég og Maike
Maike og Ég
....allavega ég blogga meira seinna...Elska ykkur öll...Sé ykkur eftir 3 mánuði.
 Kv. Vala
»
15.03.2008 22:58:26 / Vala
Halló Halló....
- Vá ég held að það sé algjörlega kominn tími á blogg, það er búið að vera mikið að gera hjá mér þannig ég er ekki búin að hafa tíma fyrir blogg....og svo er auðvitað smá leti þarna líka Og ég verð eiginlega að viðurkenna að ég nenni ekki að blogga núna 
- Allavegana það er ýmislegt búið að gerast í þessum mánuði sem ég hef ekki bloggað. Ég át sushi...ég elska sushi. Já þið heyrðu það rétt ÉG ELSKA SUSHI....og þegar ég kem heim þarf ég að finna einhvern góðan sushi stað. Eru einhverjri japanskir veitingastaðir í Reykjavík? Ekki nings...sem er kínverstk, en gott...japanskt er bara betra. Ég er líka orðin pró í að éta með chop sticks (man ekki íslenska orðið yfir það, þið vitið prikin sem maður borðar með þegar maður étur asískan mat) Allavegana....
 Yoko sem heldur á chopsticks! Svo er ég byrjuð í Badminton og ég vann síðasta leikinn minn bara svona til að láta ykkur vita, þá unnum ég og Mieka partnerinn minn 21-19...ég var orðin ansi reið þegar leið á leikinn....
 Ég og Mieka í okkar óskaplega klappstýrulegu uniforms fyrir Badminton....by the way þá er badminton spaðinn minn BLEIKUR!
En allavega þá gengur badminton bara mjög vel....
- Svo fór ég að sjá skólalekritið okkar, sem var...ehhh....já...hmmm......söngleikur...ehhhh... Og svo var talent show, sem var spes...það er hæfileiki í Bullard... svo er ég búin að fara í bíó nokkuð oft, ég sá Be kind Rewind, Charlie Bartlet, The Bank Job, sem ég virkilega get sagt að sé besta mynd 2008 hingað til, sem ég hef séð allavega...og einhverjar fleiri, ég er alltaf í bíó, fer 1 sinni til 3 sinnum í viku....hinsvegar er ég búin að leigja mér spólu svona 3 sinnum síðan ég kom hingað. Ekki beint líkt mér ha...hehe
- Svo var AFS orientation í Sacramento sem er höfuðborg Californiu, en ekki LA. fyrir þá sem ekki vita. Sem var bara mjög fínt, við fórum að versla og í einhverja hella og svo capital building, þar sem ég fékk EKKI að sjá Arnold....ég er frekar ósátt, ég meina hver er tilgangurinn að fara þangað ef maður fær ekki að sjá ríkisstjórann! En svo tilkynntu AFS fólkið að þessi ferð væri til að gera okkur til fyrir heimkomu...eftir 3 mánuði...ég meina það eru alveg 3 mánuðir þangað til ég kem heim...en þau voru að tala við okkur um farangur og alles, ég þarf víst að fara byrja að senda hluti heim...já magnea ýmislegt DVD er víst á leiðinni heim einhvertíman í mánuðinum. En hér eru nokkrar myndir úr þeirri ferð setti líka í myndir USA...
 Ég....
 Ég ofur kúl!
 Ég og Suvi
 Herðu ég stal þessari af bryndísi...bara út af því hversu augljóslegt er að ég er að skemmta mér alveg svakalega mikið þarna 
- Herðu og svo í gær 14. Mars var Sadie Hawkins dance...sem er ball þar sem stelpan spyr strákin en ekki öfugt og það er alltaf svona þema og í ár var þemað occupations (starf, vinna), og var mikið að hórum (án djóks), lögreglukonum, slökkvuliðskonum, flugfreyjum...nefndu bara eitthvað starfsheiti þar sem stelpur geta klætt sig í eins lítil föt og hugsanlegt er. Ég spurði nú engan vegna tímaörfuðleika (eða það var búið að spurja alla þegar ég loksin ætlaði að spurja) Þannig ég bara fór með Yoko vinkonu minni og það var bara mjög skemmtilegt...auðvitað ekkert miðað við kvennó böllin góðu. En ég setti einnig myndir frá sadie's inn á síðuna...klappið fyrir mér...og hérna eru nokkrar fyrir þá sem nenna ekki að skoða.
 Ég var semsagt bílvélavirki
 Yoko og ég
 Skiptinemar að skemmta sér 
 Ég og Graham
 Ég og Jack, en vinnuheiti hans var King...hehe
- Herðu fyrir utan þetta ofangreinda er ekki mikið búið að gerast...ég sá MAMMA MIA! sem var heldur skemmtilegt og mik langaði eiginlega bara að bresta í söng, þá aðalega abba lög eftir að hafa sé þann söngleik...heldur skemmtilegt.
- Í dag er svo 15. mars og það eru 3 DAGA Í AFMÆLIÐ MITT...OMG ÉG VERÐ 18 ÁRA!
En heyrðu ég ælta að ljúka þessu bloggi með því að segja:
" Ástirnar mínar veriði nú duglegri í að kommenta, ein af helstu ástæðunum, ef ekki sú eina yfir því að ég blogga er til að fá komment, ég er ekki að blogga fyrir mig ég er nú að blogga fyrir ykkur, þannig látið mig vita að þið heimsóttuð síðuna mína með því að skilja eftir línu!"
Kv. Vala Björg
herðu eitt að lokum... * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * ÉG KEM HEIM SNEMMA MORGUNS 2. JÚLÍ 2008!
»
18.02.2008 05:52:52 / Vala
Halló... - Mér fannst vera komin tími á blogg...og þegar ég blogga þá hef ég nákvæmlega ekkert að segja, eða allavega voða lítið. Afhverju? Herðu bara út af því að það er svo svakalega lítið búið að gerast hjá mér. - Hjá mér hefur ekkert verið nema endalaus frí og holidays...um dagin var einmitt 4 daga helgi hjá mér, eða réttarasagt 5 því ég var veik á þriðjudeginum. Föstudaginn 8. febrúar var semsagt senior ditch day hjá mér sem er "unofficial holiday" semsagt þá skrópa allir 4.bekkingar í skólanum, eða flestir, þeir sem eru með úber ömurlega kennara sem draga af 20 stig eða láta þig skrifa 5 bls. ritgerð ef þú mætir ekki, mættu í skólan... Svo á mánudeginum var afmæli Washingtons svo allir að fa frí.... Og svo á morgun...eða í dag hjá ykkur, er frí því að Lincoln átti afmæli...HÚRRA! Haha...samt mjög sorlegt að hann hafi verið myrtur. - Annars get ég sagt ykkur eitt að eitt af því ömurlegasta sem til er er að taka skólarútuna á morgnana eða í öðrum orðum "The Bus", þetta er ekki eins og taka strætó í kvennó á morgnana ó nei ó nei... heldur kemur rútan klukkan 7:04 (skólin byrjar klukkan 8, ég vorkenni bara krökkunum sem þurfa að taka rútuna klukkan 6:30) og svo er maður umkringdur 9. bekkingum og 10.bekkingum sem eru flest allir emo og úber pirrandi. Svo er maður mættur í skólan klukkan 7:15 eða 7:20 og þarf að bíða í 40 mínútur, það sökkar ó svo mikið, sérstaklega ef þú hefur ekkert að gera, I-podinn þinn er bilaður og þú villt sofa! Og enginn félagskapur í kringum þig nema hellingur af pirrandi emo krökkum! - Ég varð að koma biturleikanum út úr mér... Annars ástæðan yfir því að ég hef veri að taka "The Bus" í skólan undanfarna daga er vegna svakalegs samviskubits sem byrjaði svona: Ég fæ semsagt yfirleitt far hjá vinkonu minni Whitney og ég mað hana um far í skólan þriðjudagin eftir 4 daga helgina, herðu vaknaði ég ekki klukkan 7:47 þegar Whitney var komin og farin, búin að dingla eins og ég veit ekki hvað og ég vakna ekki. Ég heyp fram öskra á Carolyn "Is Whitney here" algjörlega í panikki, hringji svo í Whitney segjandi hvað mér þykir þetta ótrúlega leiðinlegt og hvað ég er með mikið samviskubit og yndislega manneskjan sem hún er var hún ekki vitund reið heldur bara hló af þessu og sagði bara "Haha it's ok, don't worry about it!" ...ég veit um nokkrar manneskjur sem hefðu orðið nett pirraðar hefði þetta gerðst fyrir þær!...en annars endaði ég með því að fara ekki í skólan þennan dag því að ég var veik...ahhh veikindi svo skemmtilegt, eitthvað sem ég er búin að lifa með mikið síðustu 6 mánuði...Já fólk: Vala er búin að vera í Bandaríkjunum í 6 mánuði, 1 viku og 2 daga....trúiði þessu, aðeins meira en 4 mánuðir eftir og þið sitjið upp með mig næstu 80 árin.
- Hmmm svo var Valentínusardagur aka. "Singles Awareness Day" síðasta fimmtudag, réttarasagt 14. Febrúar. Og gengu margir um skólan með risastóra bangsa, rauðar og bleikar blöðrur og súkkulaði. Og ég lýg ekki þegar ég segji margir. Allaveg þá var þetta bara hin fínasti dagur, ég fékk hjartalagaða köku frá vinkonu minni Jenny, valentínusar kort frá Juuliu, og sweethearts (nammi) frá Katelyn stelpu sem er með mér í photo...svo helling af nammi frá random fólki. En svo lá leiðin heim þar sem þar beið mér see's candys konfekt frá Jeff host pabba, see's candy næst besta nammi í heimi!  Ég með hjartalöguðu kökuna sem Jenny gaf mér...kremið var mjög gott  - Ég hef svo ekkert að segja fólk að það er ekki eðlilegt...ég er búin að sjá einstaklega mikið af lélegum myndum undafarið...Ekki sjá Over her dead body og ekki sjá Untraceable...alls ekki sjá þá mynd, vá hún sökkaði feitan fólk... Annars sá ég loksins Across the Universe sem ég mæli með, þótt að Evan Rachel Wood hafi farið nett í taugarnar á mér og söguþráðurinn verið út um allt, var hún bara nokkuð góð. Vala verður 18 eftir nákvæmlega mánuð!
Ég ætla að reyna vera duglegri í blogginu... Svo nokkrar myndir úr theater...mér leiddist...  Ég  Emo mynd...  Megan og ég  ...  Ég...ég...ég...og aftur ég  Megan ég og Megan...ég þekki helling af Megans  Ég úber kúl með gul sólgleraugu...sem því miður ég á ekki  Ég er algjörlega að deyja úr cool-leika! Ég er farinn... Munið að Vala Elskar Ykkur.... By the way...ég er ekki að fíla nýja systemið á blog.central...þetta er mjög truflandi... Kommentið ástirnar mínar....þið getið meira en 7 komment.... Og Runólfur þú ert að tala um vinkonur mínar....ég á fallega vini góði!
»
28.01.2008 18:08:29 / Vala
Halló.... -Þið afsakið bloggleysið ég ætlaði mér ekki að það yrði svona langur tími á milli eeeeen, leti og hlutir gerast. Svona er þetta. - Jæja hvað er búið að gerast síðan 14. Janúar. Herðu jú ég er byrjuð í Badminton en hugsanlega get ekki haldið áfram vegna veikinda....JÁ! Ég er alltaf veik hérna, helvítis....ég fer semsagt til læknis á þriðjudaginn...eða á morgun og fæ að vita meira um þennan vírus sem ég er með. Ég er semsagt veik í augnablikinu, með hálsbólgu. Ég verð búin að fá alla mögulega vírusa áður en ég kem heim. Ég sver. -Allavega ekki meira leiðindartal um veikindi. Tölum heldur um eina hlutin sem ég dýrka við bandaríska skólakerfið....Hinir endalausu frídagar. Semsagt þessa helgi og síðustu helgi hafa báðar verið langar helgar vegna frís á mánudegi. Og það skemmtilega er að ekki næsta mánudag heldur næstu tvo mánudaga eftir hann er líka frí ....awww California Public School system. - Semsagt síðustu helgi mætti eiginlega kalla skiptinema helgi, á föstudeginum fór ég semsagt í keilu með Juuliu (Finnland), Helenu (Svíþjóð , Yoko (Japan), Leonie (Germany), Jenny (Germany) ég (æ þið vitið þarna landið, eitthvað ís eitthvað Sem var án efa bara ein af skemtilegustu kvöldum mínum hér. Og set ég þar myndir inn á   Keiluskór...YAY!
 Helena! Í lausu lofti
 ATH! Ekki Valan sem þið þekkið
 Við skiptinemarnir....
 Leonie, Yoko, Juulia, Helena, I, Jenny
 Hoppípolla
 Ég og mínir fætur...haha
- Svo á Laugardeginum fór ég og skoðaði opin hús með Carolyn og Amondu sem var ekkert svakalega skemmtilegt, við fórum úr ógeðslegu húsi yfir í ógeðslegra. Svo um kvöldið fór ég á Cloverfield með Joel, sem er nú bara hin skemmtilegasta mynd skal ég segha ykkur...virkaði allavega helvíti vel á mig.  Ég og Joel...ekki hin besta mynd af honum en þetta er eina myndin sem er til af okkur tvem.... segji ég myndavéla crazy ég....ég verð að taka mig á....
- Svo á sunnudeginum fór ég með Melanie að versla, en þar keypti ég ekki neitt þar sem ég setti sjálfan mig í verslunar straff... Já engin föt fyrir mig í tvo mánuði...OMG! Haha nei segji svona en ég er allavega í verslunar staffi. Svo fór eg í kveðju partýið hennar Leonie um kvöldið sem var bara nokkuð skemmtilegt skal ég segja ykkur....  Afhverju ég er með þennan hræðilega svip á mér ekki spyrja mig...
 Leonie, Suzka og ég...og svo juulia þarna aftast
 Megan and I
Síðan seinna um kvöldið gistum við skiptinemarnir heima hjá Leonie og þar með vorum við sex lönd komin saman í einu herbergi Ísland, Svíðþjóð, Finnland, Þýskaland, Japan, Slóvaíka... - Herðu svo gerðist ekkert merkilegt á mánudeginum annað en að ég fór í göngutúr með Helenu og leigði mér The Simpsons movie sem var bara ekkert það spes, sorry en söguþráðurinn hefði virkað svo mikið betur sem bara 20 mín. þáttur. - Svo leið vikan og ég tók próf í Gov, sem mér gekk bara helvíti vel í. Ég fór í bíó á 27 dresses sem var ekkert spes...alls ekki. Ég fór í skólan og svo kom helgi sem er enn núna...afhverju...því það er löng helgi. Annars gerðist ekkert merkilegt þessa helgi því ég var hálfveik og er...ég fór á spunakvöld í skólanum, sem var nú bara helvíti fyndið, hékk með vinum....svo svaf ég mest allan laugardaginn...gróðursetti tré á sunnudeginum og svaf einnig....herðu og svo er klukkan bara 10 hjá mér núna þannig að aldrei að vita hvað ég geri í dag....held nú samt bara að ég sofi og horfði á sjónvarp því á morgun er ég að fara til læknis....AFTUR! -Herðu ég gleymdi alltaf að segja ykkur frá því að hann Joel keypti sér bók um dagin með helling af smásögum og köflum eftir íslenska höfundi...á ensku. Og inn í bókinni var mini séð og heyrt blað....fannst þetta bara ógeðslega fyndið þannig ákvað að deila þessu með ykkur.... Herðu og fyrir þá sem eru ekki enn búin að sjá Klippurnar um Ísland í the Daily show þá eru þær hér....þetta er svo ógeðslega fyndið  Operation Deserter storm Pr. 1 Pt. 2 Vala segir Bless Bless.
»
14.01.2008 05:47:08 / Vala
Halló.... -Allt í lagi ég veit að fyrir ofan stendur að það sé 14. janúar en hjá mér er 13. janúar og klukkan er 20:47 og systir mín á afmæli í dag og þar með blogga ég. Til Hamingju með afmælið Sigga Birna og takk fyrir að vera æðislega systirn sem þú ert! - Allt í lagi nú ætla ég að tala aðeins um kommentin, ég sagðist ekki ætla að blogga fyrr en ég fengi 15 komment sem ég fékk , en það tók 13 daga og ég fæ alveg þó nokkuð margar heimsóknir á dag svo ég spyr, eru þið eitthvað hrædd við að kommenta eða? -Allavegana í það góða, 2008 er gengið í garð og byrjaði það bara alveg ágætlega. Við fórum til Andreu sem var með boð þar og ég og Júulia vorum bara eitthvað að hanga og svo þegar klukkan sló tólf fórum við í heita pottin vorum þar í ein og hálfan og svo fór ég að sofa klukkan 2. Já þetta er met fyrir mig að fara sofa svona snemma á gamlárskvöld. Annars eru gamlárskvöld hérna ekkert miðað við heima skal ég segja ykkur, engir flugeldar enginn dressar sig up, þetta var samt bara voða kósý. - Svo 1. Janúar vaknaði ég klukkan 8 (minn vanarlegi svefntími eftir að gamla árið líður) og fjölskyldan kom og náði í mig til Juuliu þar sem ég hafði gyst seinna árið. Við fórum svo upp í fjöllin þar sem stóru trén og snjórin var. Ég, Amanda, Matt, Carolyn og Jeff fórum og fengum okkur göngu upp í fjöllunum sem var bara alls ekki slæmt skal ég segja ykkur, mjög skemmtilegt bara og hér eru þar með nokkrar myndir og einnig fleiri í myndir USA.  Matt, Jeff, ég og Carolyn
 Ég o Jeff
 Ég 
- Svo 2. Janúar fór ég til Ventura með Carolyn og Bryndísi. Við byrjuðum á að fara í Magic Mounain, Six Flags sem er skemmtigarður. Þar skemmtum við okkur mjög vel, nánast engar raðir í tækin...  Ég og Bryndís með Bugs Bunny og duck sem ég man ekki hvað heitir.
 Skemmtilegt tæki
 Ég og Bryndís....
- Svo seinni daginn lá leiðin til Universal studios. Ég, Bryndís, Carolyn og Linda (Mamma Amöndu sem við vorum hjá Eins og flestir vita þá er ég kvikmynda nörd og Universal studios var hreinn draumur fyrir mig...við tókum túr og sáum settið hjá desperate houswifes, skipið úr king kong, Jaws, war of the worlds, the bate's motel og ýmislegt fleira...
 I saw King Kong....arg  Ég og hetjan mín Sponge bob
 If only it was real 
 Mynd sem ég lét teikna a mér...er ég ekki fín og fjólublá!
 Ég og Bryndís ásamt Simpsons fjölskyldunni.
Svo tók ég þátt í svona special effect show þar sem ég var volunter. Ég þar á meðal barðist við köt´t, byggði píramída og var partu af the nutty professor fjölskyldunni...
 Svona bregst ég við giant kitties...
- Svo 4. Janúar fórum við á safnið The Ghetty Villa, rosa flott bygging en samt ekki beint mín art en samt voða flott en herðu svo eftir það leið leiðin til L.A. þar sem við fórum og sáum Jay Leno. Við fengum fría miða í Universal og ákváðum að skella okkur, það voru ekki neitt svakalegir gesti vegna writers strike [sem var fyrir utan NBC studios í Burbank, fékk örlítið samvisku bit yfir því] en ég fékk að sjá Jay Leno og er það örugglega eitthvað sem ég fæ ekki að gera aftur....Þetta er allt mikið minna en það virðist í sjónvarpinu skal ég segja ykkur geggjað spes  Ég set svo myndir frá ferðinni inn á á morgun....lofa  - Svo laugardagin kom ég heim og fékk ég ekki þessa svakalegu gubbupest....já fólk ég er alltaf veik....en ég fékk gubbupest í fyrsta sinn á allri æfi minni, hvað segjir það um loftið í Fresno? En þar með misti ég af fyrsta skóladeginum af nýja árinu. Já svona byrjar maður árið krakkar.... Og svo kommenta! Kv. Vala B.
»
31.12.2007 06:57:45 / Vala
-Jæja fólk, síðasta blog færsla ársins 2007. Það er sárt að segja bless við þetta yndislega ár sem var eitt af því besta í lífs sögu Völu. Svo hér tel ég upp það sem stóð upp úr á árinu... - Árið byrjaði ágætlega, ég veit ekki hvort að gamlársdagur hafi verið það skemmtilegasta í heimi...en maður gerir ýmislegt fyrir vina sína.
- Kvennó....ó yndislegi Kvennaskóli minn. Fúría kom og fór. Furíuferðin eitt af því sem stendur upp úr á árinu...VÁ hún var svo skemmtileg. Allt yndislega fólkið sem var í leikritinu og hversu vel leikritið heppnaðist. En Hroki og Hleypidómar var mitt líf í u.þ.b. mánuð.
- Ég veit að spunin er hálflega séð 2006 en ég bara nefni hann hér, því ég sakna hans svo ógurlega mikið.
- Auður Dönskukennari....shitt....þarf að segja meira.
- Emo þráhyggjan...já hún hélt áfram árið 2007 og endaði með tvem emo bloggum.
- Árshátíð Kvennó var meh, ágæt. Jet Black Joe ekki ball hljómsveit. Árshátíðar myndin var hinsvegar mögnuð, hver man ekki eftir stelpunni sem fékk skó í sig?
- Herðu ég átti afmæli og varð 17 ára, leigði mér The Departed á grensás sem ég fékk fría og í fyrsta sinn í lífssögu minni gleymdi ég að skila spóli...þökk sé leikritsins...í heila tvo daga. Pabbi þurfti að skila henni fyrir mig því ég hafði ekki tíma (leikritið
, svo þegar hann sagði að þetta væri frá mér var hann Ragnar svo yndæll að láta mig ekki fá neina skuld 
- Grímuballið var fokking MAGNAÐ! Sammála...JÁ!
- Morfís...afhverju í anskotanum töpuðum við fyrir borgó...ég er ekki enn búin að jafna mig.
- Ég rétt svo náði stærfræðinni og dönskunni (FO...) ég náði allavega fyrsta árinu í Kvennó...YAY! Sem var fagnað með Lokaballinu sem var skemmtilegt, fyrir utan klukkutíman sem maður þurfti að bíða fyrir utan Nasa!
- Ég er pro í að setja saman rúm og taka þau aftur niður!
- Ég sakna krakkana í tónabæ...leikjanámskeið eru skemmtileg.
- Einnig vann ég í Elko.
- Kosningarvakan var ekki slæm heldur

- Það var mikið rúntað árið 2007 og mest var það með Jóhönnu.
- Sorgarstund var þann 20. júlí klukkan 23.00 þegar síðasta Harry Potter kom út og var ég þar númer 13 í röðinni við Mál og Menningu
- Útilegur sumarsins voru skemmtilegar
AFS útilegan var fokking mögnuð!
- Sumarið var svo yndislegt, I worked my ass off...en að eyða tíma með vinunum var yndislegt. Og heitt ekkert smá maður, svakalega hitabylgja var þetta sem kom í Júlí...en samt ekkert miðað við það sem kom í ágúst hjá mér í Calirfornia.
- Þann 8. Ágúst fór ég af landinu í átt til Fresno, CA. Þar sem hiti og High school tók á móti mér.
- Bullard High School: Umkringd 2699 nemendum, kennurum sem hata hvort annað og hata nemendur enn meira og fela það ekki *HÓST*Mrs. Honda*HÓST*
Amerískur fótbolti er spes, klappstýrur eru næs, jocks eru artistic og allar stelpur eru sluts...what's up with that.... Leiklistar kennari sem tekur vinunni allt of alvarlega og eyðir helmingi tímans í að kvarta. Ensku kennari sem kennir ekki ensku heldur talar um sitt eigið líf eins og það sé það sem hún eigi að vera kenna. Myndistarkennari sem er einnig football coach....? Og síðast en ekki síss journalism kennari sem hatar Joel og Melanie út af því að þau eru vinir mínir...sem þýðir hún HATAR MIG!
- Ég fékk heimskulegustu spurningar í heimi..brot af því besta:
"What language do you speak?" "Do you know how to write your language?" "Do you know elfish?" "Do poeple in Iceland hate Bush?"
- Freak Dancing good or bad?????
- Homecoming var æði...horfði ekkert á leikinn samt

- The rise and fall of the Coke-aholic...
- "Hello, My name is Vala and I am a Myspace-aholic!" "Hello Vala"
- Ég dó einmitt í ár næstum því ég hvarf í heilar tvær vikur í ein verstu veikindi sem ég hef á allri æfi minni upplifað...Magavírus ég gat ekki borðað neitt, ég mátti ekki borða neitt...ég lifði á gatorade (OJ) og sprite...svo leiddu þessi veikindi í ofþurkun því ég drakk ekki nógu mikið, réttarasagt tungan mín var eins og sandpappír...án djóks. Og þessi veikindi eyðilögðu einkunnir mínar algjörlega....skil ekki skóla systemið í bandaríkjunum það er bögg.
- Halloween...
- Winter Formal var svo geðveikt skemmtilegt að orð lýsa því ekki...æði æði æði.
- Hannukah....
- HAWAII...HELL YEAH
- Jólin....
Og svo....
Árið 2007 í myndum:  Hroki og Hleypidómar....ó hvílíkar minningar 
 Bryndís, Júlíanna og Thelma yndislegu spunaliðsmenn mínir.

 Fúríu PARTÝ......svo gaman 

 Árshátíð Kvennó

 Ég varð 17 ára.
Grímuballið
 Emo mynd ársins 2007...hversu emo getur maður verið!
 Pizza höt með stelpunum í bekknum var nú ekki óskemmtilegt 
 Lokaballið

 Blessuð sé minning Herra Níels...þíns mun verða sárt saknað.


 Bekkjarútilegan...

 Harry Potter röðin...já ég veit ég er nörd





 Mínir yndislegu vinir á mínum síðustu dögum á landinu...ÉG ELSKA YKKUR MEST!
 Leifstöð að kveðja mig... Fallegasta og Bestasta fjölskylda í heimi sem ég sakna mest af öllu!



 I made some awesome new riends 


 Thanksgiving! 

 Winter Formal 2007...my first and last so much fun
Hannukah

 Matt "bróðir"...haha
 Ég og Carolyn  The Piped Piper
 Ó já ég fékk mér líka eitt stykki web cam...og ég er enn með jafn mikla augna þráhyggju og í fyrra!
The Good And the Bad of 2007 Músík: Allt í lagi núna ætla ég að fara yfir það sem stóð upp úr í tónlistinni 2007...sorry ef það er eitthvað 2006 það er þá bara þarna út af því að ég var að fíla það 2007...takk fyrir! .... GRACE KELLY lagið sem Mika lét alla fá á heilan, en þetta yndislega lag er stuð lag dauðans og brings back good memories. Plús öll hin lögin sem Mika gerði sem voru einstaklega happy og sick Lolli Pop er þar helst að nefna...lag sem hann samdi fyrir systur sína. En maður getur ekki annað en elska þennan einstaklega gay aðila...talandi um samkynhneigð... ALLT FYRIR ÁSTINA vá hvað þetta lag er ömurlegt en samt svo gott, myndbandið....þarf að segja meira. Hint fyrir afmælisgjöf...páll óskar+cd. Íslensk tónlist er best, Soundspell (sem ég efa að einhver ykkar hafi heyrt um) gaf út þennan magnaða disk...svo var það Sprengjuhöllin einnig, Takk fyrir diskinn  Maður sem á ekkert nema virðingu skilið er TIMBALAND hversu mörg lög hafiði heyrt í ár sem þessi maður var í, plús öll lögin sem hann produce-aði..The Way I are hver fékk það ekki á heilan og hið magnaða lag Apologize öll platan hans Timbaland presents: Shock Value er hreinlega mögnuð fólk. Time er besta lagið á disknum, þú hlusta núna! Under my Umbrella-ella-ella-ella-eh-eh....UMBRELLA með Rhianna eitt poppaðasta lag ársins, ef einhver neitar að hafa ekki fengið lagið á heilann, kalla ég þann aðila LYGARA! Put your hands up for detroit, a lovely city (eða hvað sem önnur línan var) partý lag ársins...kom kannski út 2006 but who really cares? Hvað var málið með FERGIE í ár og að gefa út öll ömurlegu lögin sem hún gaf út, hún kann ekki að syngja það er einfaldlega svo einfalt! Talandi um...hvað er málið með Britney Spears, er hún að missa vitið...sköllótt...rosalega mishepnaða endurkoman...guð minn góður...missir börnin...það er of mikið í gangi hjá henni til að telja upp...æj já hún gaf líka út disk í ár...gleymdi því. Justin Timberlake var í fyrra en hann svo héllt áfram þetta árið Lovestoned...fokking magnað lag.... Paris Hilton fór í fangelsi og Lindsey Lohan í rehab oftar en einu sinni... Talandi um Rehab þetta einstaklega magnaða lag sem hún Amy Winehouse, hin geðveika Amy Winehouse fyrirgefið, gerði vinsælt. Nickleback endurgaf út lag sem kom fyrst út árið 2005 og ber nafnið Rockstar sem ég held að virkilega sé besta lag sem þeir hafa nokkurtíman gefið út, meirisegja fólk sem hata Nickleback getur ekki annað en viðurkennt að þetta sé gott lag. Teenagers scare the living shit out of me....lalalalalalal Take a look at my girlfriend...Cupids Chokehold...ofspilað á Fm...já! You could be my black kate moss tonight...can only make me STRONGER... eitt er víst ofspilað lag á fótbolta leikjum hér hjá klappstýrunum...geðveikt lag. Nú veit ég ekki hvort að SOULJA BOY æðið sé komið til Íslands en eitt er vís að þetta ömurlega góða lag tröllreið öllu hér í Kaliforníu now watch me yuuuuuaaaal. Ef það er ekki komið, bíðið í svona mánuð og þið munið heyra það á FM. Hey hey you you I want to be your GIRLFRIEND...Avril Lavigne dansaði í myndbandinu við lagið, ótrúlegt en satt, þá var þetta helvíti catchy lag.... The Used gaf líka út þennan all magnaða disk þetta árið, Lies for the liars...The Bird and The worm helvíti magnað lag, en myndbandið var fucked up. Fall out boy...þarf að segja meira.
Kvikmyndir: .... Þetta árið var það The Departed sem fékk óskarinn, loksin fékk Scorcesse litla kallinn. Góð mynd verð ég að viðurkenna, mig langar að segja að hún sé ofmetin en ég bara get það ekki. ZODIAC er án efa ein af bestu myndum ársins, enda David Fincher sem leikstýrði...sástu hana ekki, you better go rent it then! Jake Gyllenhal er í henni fyri þá sem vilja ástæðu. SUNSHINE...fallegasti endir í sögu kvikmynda...já fallegasti! Sami leikstjóri og leikstýrði 28 days later... Ég nefni THE PRESTIGE hér, er 2006 mynd en kom ekki til íslands fyrr en 2007...lame...með betri myndum ársins. Christian Bale ásamt Hugh Jackman fara á kostum... Þeir sem gerðu Shaun of the dead gáfu út HOT FUZZ í ár "Ever fired your gun in the air and yelled, 'Aaaaaaah?'" Örugglega fyndasta mynd ársins... EPIC MOVIE...Afhverju gup....AFHVERJU!? HAIRSPRAY...yndislega söngleikjamynd þar sem John Travolta leikur pirrandi mömmu, Amanda Bynes er hreint út sagt yndisleg og Zac Effron er óþolandi hot! SPIDER MAN ER KÚL....Þriðja myndin var síst af öllum þrem en hún var samt góð afþreying, hún átti sína mörgu galla, en hún var samt góð afþreying...ég elska spider-man! Sorry ekkert sem ég get gert í því. KNOCKED UP úber fyndin og vá gróf, fólkið sem fór með mér á hana veit hvað ég er að tala um. Hversu oft var Fuck sagt í SUPERBAD? Örlítið ofmetin en samt mjög fyndin og ekki slæm heldur, með betri gamanmyndum sem ég hef séð..."I am McLovin" THE BROTHERS SOLOMON...OJ...mig langar til að æla! AMERICAN GANGSTER er ofmetin. Ég sagði það. það var enginn karakterþróun í myndinni fólk! Ef þú villt sjá Viggo Mortensen berjast fyrir líf sitt...nakinn...horfðu þá á EASTERN PROMISES...einnig ofmetin og fyrirsjánleg. Eina ástæðan yfir því að ég nefni hér 3:10 to Yuma og 30 days of night er út af því að BEN FOSTER var í þeim  OMG Fólk, Daniel Radcliffe getur actually leikið, hann sannaði það fyrir okkur í HARRY POTTER 5 eftir 4 tilraunir í hinum 4 myndunum.... ég er fegin að David Yates gerir næstu mynd maður...eina harry potter myndin sem ég er sátt við...Þið vitið hvernig mér líður um númer 3. JUNO...ég veit ekki hvenar hún kemur til landsins en þegar hún kemur, farðu á hana! Hreint út sagt yndisleg mynd. "You better pay for that pee-stick when you're done with it. Don't think it's yours just because you marked it with your urine! " PIRATES 3 var allt of löng....allllllllllt of löng! Samt góð afþreying Og nú vitna ég í mína eigin gagnrýni fyrir the Charger "Toby Jones (Ollie is not hero material instead he's just an almost bold guy with a gun." THE MIST er mynd sem þú villt ekki sjá...það er hreint út sagt að maðurinn sem leikstýrði og skrifaði The shawshank redeption hafi gefið frá sér þvílíkan sora....The mist er hreint út sagt versta mynd ársins 2007 sem ég sá...ég dó úr hlátri í bíó vegna slæm leiks hennar. SAW 4....við eigum von á 5,6,7,8,9...þangað til þeir renna úr hugmyndum fyrir gilrur...hví!? Ég gleymdi alveg ábyggilega einhverju, guð veit að ég setti met í ár að fara í bíó...ég er búin að fara 4 sinnum í bíó síðustu fjóra daga.
Ég án efa gleymdi einhverju svo kommentiði ef ég gleymdi einhverju og einnig ykkar skoðanir eða bara ef þið viljið bæta einhverju við...
- 2007 er á enda og þakka ég ykkur öllum fyrir þetta yndislega ár sem ég átti, eða allavega helminginn af því Ef það er eitthvað sem ég hef gert mér grein fyrir eftir u.þ.b. 5 mánaða dvöl hér í bandaríkjunum er hversu ótrúlega góða vini ég á heima og hversu yndislega fjölskyldu ég á (vissi það nú frá upphafi en sakar ekki að nefna það .
ÞIÐ ERUÐ BESTA FÓLK Í HEIMI OG ÉG SAKNA YKKUR MEIRA EN ALLT...ég get ekki beðið eftir að eyða seinni helming 2008 með ykkur.
Muniði svo að kommenta, því þið hafið ekki verið neitt svakalega góð í því...kommenta...KOMMENTA...ég held ekki áfram að blogga nem ég fái að minnstakosti 15 komment...minnsta kosti! Hvað fannst ykkur um 2007 ástir? Og hvað eru áramótaheitin í ár? Ég er ekki búin að figure mine out svo ég segji ykkur seinna....
Ég ætla að reyna að blogga meira á næsta ári, og hafa bloggin kannski aðeins styttri í þokkabót.
og munið....VALA ELSKAR YKKUR! p.s. [hvísl rödd] kommenta
p.s2. sorry fyrir allar stafsetninga villurnar...ég er þreytt klukkan er 3:30 hjá mér...so you better comment!
p.s.3. ó já ég setti myndir frá Hawaii og frá leikritinu á síðuna...enjoy...ko-ment?
»
25.12.2007 08:30:07 / Vala
Aloha! - And I have returned from Hawaii! Ágæta fólk...ég meina æðislega fólk Ég veit að ég er ekki búin að blogga lengi en ekki hef ég haft neinn tíma, rosa mikið búið að vera að gerast hér hjá há og núna kemur smá talning! -Hannukah kom of fór, fyrsta kvöld Hannukah fórum við í mat til The Waxmans sem eru vinafólk Jeffs og Carolyn, úber fínt fólk. Mjög gaman þar, átum mat og spiluðum actionary og skiptum gjöfum. Ég fékk voða fínt hálsmenn sem fyrstu gjöf hannukah frá jeff og carolyn og svo fékk ég 15$ gjafakort á I-tunes frá the Waxmans sem mér fannst úber nice af þeim. Svo voru hinir 7 dagar hannukah voða fljótir að líða, ógeðslega mikið að gera hjá mér, undirbúa ferð, klára jóla innkaup vá þessi vika var hræðileg. En hannukah jafirnar mínar vou inniskór, snyrtidót, starbucks bolli, 100$ frá Jeff fyrir Hawaii , charm bracelet og einn charm fyrir það... - Á Föstudaginn 7. desember sýndum við lokstin The Piped Piper, svo feginn að mitt hlutverk sem rotta sé búið, en það heppnaðist bara ágætlega, ég stóð mig nú bara nokkuð vel verð ég að segja. Nema bara Mr. Hoff kennarinn okkar var ekkert of ánægður með okkur og nú endurtek ég hann (Einn hendinn á honum er hátt upii og hin er frekar neðarlega) "You could have been there, but instead you where only medium...I expected more of you but you didn't take it seriously. Yes you did a good job but it could have been so much better. I'm disapointed in you!" Ég spyr hver tekur barnaleikrit sem er sýnt aðeins einu sinni og aðeins æft í fyrsta tíma í leiklist alvarlega...hmmmmmm... plús hann er nú ekki besti leikstjóri í heimi....en þetta var nú allt voða gaman...oooooooooooooog hér eru nokkrar myndir:  Mest allur hópurinn...sjáiði mig?
 A rat with an attitude
 Ég og Megan eftir leikritið á Starbucks...sem er á öðruhverju horni....án djóks. ef kringlan væri í bandaríkjunum væru 4 starbucks þar...Mér er alvara!  Max að halda á Megan...sem vildi það ekki
 Max og Joel...skemmtileg mynd 
- Svo fór ég til San Fransisco á laugardaginn þann 8. des. Me like San Fransisco. Ég fór með Jeff og Carolyn og við átum mat og sáum mjög svo fyndið leikrit með fjölskyldu Jeff's, eitthvað sem þau vilja kalla Zutmas! Ég hafði ekki mikin tíma þar, við gengum aðeins um Union Square og versluðum pínu, ég keypti mér úber fína úlpu/kápu í H&M. Herðu svo fór ég í Virgin Megastore þar var að skima í gegnum international films sá ég ekki tvær íslenskar myndir þar 101 Reykjavík og Nói Albínói, þjóðastoltið fór svo mikið í gegnum æðarnar að ég bara gat ekki annað en gert en að kaupa Nóa Albínóa því ég hef ekki séð hana og mig langar að sjá hana  Nokkrar myndir frá San Fran: 

 Jeff á 50´s diner sem við fórum á í san fran.
-Herðu svo fór ég tvo daga í skólann misti af lokaprófum og sonna En aðeins um það...ég var búin að segja ykkur frá Mrs. Honda er það ekki, jú ég held það...allavegana þá var ekkert próf fyrir Journalism, heldur bara mæta og éta og hrofa á mynd og eitthvað þannig drasl. Nema bara hvað að Mrs. Honda ákveður að ég þurfi að make-up mætingu mína fyrir prófið, ég þurfti semsagt að skrifa 500 orð um Shattered Glass. Ekki það slæmt nema bara það að ég skilaði ritgerðinni og spurði hana "Ummm Mrs. Honda are you going to give me 100% for writing it or going to grade me on it, because everyone else is getting 100% for their attendance and I'm just making up for my attendance?" og svo svara hún mér "I'm going to read it and I'll see" sem þýðir "Yeah I'm going to read it and I'm going to give you a bad grade because I HATE YOU!" og það gerir hún virkilega þið hefðuð átt að sjá svipin á henni þegar ég spurði hana að þessu. Fokking amerískir kennarar maður....svo fór ég til ensku kennarans míns til að skila bók til hennar og spurði hana hvort að einkunin mín myndi nokkuð fara niður því að ég tæki ekki prófið og hún sagði "What are you leaving, your not taking the test" og ég er eitthvað "No, you excused me from it" hún segir "No I would never do that" þetta endurtekur sig svona tvisvar...HVAÐ ER AÐ KENNURUNUM HÉRNA ég virkilega er að kvarta undan þeim, ég man það svo ótrulega vel þegar hún sagði við mig að ég þyrfti ekki að taka það og svo allt í einu, Ha tekuru það ekki! WTF! Amerískir kennarar eru furðulegir, þau velja obvious favorites og obvious hates, þau vita ekki sjit hvað þau eru að gera nema einn og einn þarna inn á milli, þau tína heimavinnunni, setja vitlausar einkunnir inn í tölvuna annan hvern dag, ég meina þú virkilega þarft að fylgjast með einkunum þínum til að vera alveg viss um að þú sért ekki að fá D þar sem ætti að vera B....vá. Allavegana þá er ég í uppáhaldi hjá art kennaranum mínum og ég fékk 23/25 á lokaprófinu...nokkuð gott eh  - En svo fór ég til Hawaii...Hawaii var kúl krakkar mínir...en áður en ég tala um eyjarnar ætla ég að tala aðeins um skipið. Já siglinging var ekki alveg jafn góð og ég bjóst við, það var frír matur sem var ekkert of góður, bragðaðist pínu eins og kaffiteríu matur...en ávextirnir voru úber góðir samt...og ég held að ég hafi ekki borðað jafn mikið brauð í allri æfi minni. Svo mátti ég ekki fara ein af bátnum því ég er ekki orðin 18 ára...hel...Svo var svona Tee Club á skipinu einnig, og ég ákvað að kíkja svona allavega einu sinni, og já þetta var líka eina skiptið sem ég fór því þetta var eins og barnapössun fyrir unglinga...Já Nei takk segji ég bara. Maður þurfti að skrá sig inn og skrá sig svo út, svo var algjörlega limited það sem maður mátti tala um, og horfa á og hlusta á...já. Talandi um unglina, já unglingarnir þarna sem ég hitti voru nokkrir...einn var ástfanginn af mér og restin var crazy! Án djóks, ég held að sigling sé skemtileg ef þú ert yfir 21, yngri en 11 og á áttræðisaldrinum. En svo voru eyjarnar alveg æðislega skal ég segja ykkur... ég fór á ströndina og alles fólk. Og núna eruð þið að lesa eitthvað sem þið mynduð aldrei trúa á ykkar æfi...ég fór í sólbað...já ég reyndi að tana...Ég lá í sólbaði upp á deck 12 og svo á ströndinni ég var alltaf í stuttu stuttbuxunum mínum, en nei ÉG tanaði EKKI! ég sver mér er ekki ætlað að tana...ok ég viðurkenni ég tanaði kannski pínu ogguponsu lítið, í staðin fyrir að líta út eins og lík er ég bara hvít núna. Já fólk, núna vitum við að mér var ekki ætlað að fá lit á mig...DAMN YOU SUN! Herðu svo annað sem ég held að þið mynduð ekki búast við, ég fór í sjóinn...já ég fór með meira en labbirnar í sjóinn, ég synti í sjónum líka...trúiði mér ekki!´I HAVE PROOF!  Þarna er ég að skríða eftir að hafa dottið all klaufalega!
 Eg er ekki alveg viss um hvað ég er að gera þarna eeeen...
 ÉG að bíða eftir öldunni....
 Ég er þarna grafin í sandi og sjó
Herðu svo var ég í litlum bæ á Kauai sem er elsta eyjan, Jurassic Park var tekin upp þar, einnig lost og eitthvað meira sem á að gerast á eyðieyjum, allavegana þá fór ég inn í litla sjoppu til að kaupa orku drykk og nammi, herðu viti menn hver var þar, einginn annar en sjálfur fyrverandi herra Bond, James Bond...já ég sá Pierce Brosnan. Ég vildi ekki vera dónaleg og biðja um mynd eða spurja hvort að þetta væri virkilega hann, en ég er 100% viss um að það var hann, sérstaklega þegar ég heyrð röddina hans þegar hann sagði "Oh I'm sorry" við mig þegar hann rakst í mig...æjj littla greyið hefur samt alltaf farið taugarnar á mér.  Ég og Carolyn í keppni
 "Beware of falling coconuts and fronds"
Svo gerði ég eitt sem var voða túristalegt, ég fór upp á eitt af eldfjöllunum þarna klukkan 3 um nótt til að horfa á sólar upprásina og það var allt voða fallegt en það var svo ógeðslega kallt ég hélt ég myndi frjósa til dauða....ég hata samt að vera túristi það eina sem fólkið villdi að maður gerði á skipinu var að versla "FREE SHUTTLE TO WAL-MART" já eins og Wal Mart á Hawaii sé eitthvað öðruvísi enn annarstaðar í bandaríkjunum. - Ég kom svo heim á þorláksmessu gerði ekkert mikið en í dag á aðfangadags dag þá fór ég í mat til mömmu Carolynar, við elduðum Hangokjötið sem mamma og pabbi sendu, átum laxin og laufabrauðið...hámuðum í okkur íslenska konfektið það var svo nammi gott Hangikjötið var pínu overcooked en við hverju bísdu þegar við erum að elda það í fyrsta sinn Svo opnuðum við pakkana okkar sem gerðu mig svo hamingjusama...ég opnaði pakkana frá mömmu og pabba og siggu, svo frá heiðdís, magneu og jóhönnu ég fékk tár í augun þegar ég sá kertið sem ég fékk frá fjölskyldu minni og á því stóð "Takk fyrir að vera til" Svo fékk ég bol sem á stoð I heart RVK... Takk ógeðslega mikið fyrir fallega málverkið Magnea og Heiðdís fyrir að senda mér jólaölið, takk fyrir glimmerið jóahnna ÉG ELSKA YKKUR SVO MIKIÐ...og ég sakna ykar svo ógeðslega mikið að orð lýsa því ekki...
En ástir ég ætla að fara að sofa núna því ég er stjörf ég er svo þreytt, klukkan er nefnilega 2:30 hjá mér og núna husgiðið ykkur "bíddu er það ekki heldur snemmt fyrir hana völu" ég svara, ekki lengur krakkar, minn svefntími núna er fyrir miðnætti! Annars þá veit ég að þetta er langt blogg en næsta blogg verður lengra því það er ....NÝJÁRS BLOGG! Svo þar verða nokkrar never before seen pictures from 2007...úlalla! kv. Vala  P.s. Hversu léleg er íslenskan mín orðin?
KOMMENTA!
»
16.12.2007 22:33:55 / Vala
I'M IN HAWAII YOU PEOPLE ON THE ICE COLD ISLAND IN THE ATLANTIC!

eg blogga tegar eg kem heim, mjog liklega a adfangadag 
»
03.12.2007 01:41:36 / Vala
Hæ... - Allt í lagi það fyrsta sem ég ætla að gera áður en ég byrja að blogga langa bloggfærslu er að afsaka mig yfir bloggleysi, ég hef verið bæði löt og ekki haft neinn tíma fyrir blogg, án djóks síðasta vika var svo busy hjá mér að orð lísa því ekki. Nú hitt er smá nöldur síðasta blogg var fyrir aðeins minna en mánuði og það fékk 6 komment! Bíddu bíddu ég verð nú bara að segja að það er helvíti lélegt og einnig partur af bloggleysi er að ég er bara móðguð yfir að hafa fengið svona ótrúlega fá komment á svona löngum tíma. Það er nú bara eins gott að ég fái mörg komment á þessu bloggi fyrir mig til að halda áfram að blogga....takk fyrir - Thanksgiving break var mjög skemmtileg. Fékk heila viku af fríi bara út af thanksgiving...Ég Elska Thanksgiving ... Ég fór á minn síðasta fótbolta leik, því miður töpuðum við á móti Clovis West, en leikurinn var samt skemmtilegur þrátt fyrir tapið, eftir leikin fórum ég, Lara, Maike og Malina heim til mín fyrir Sleep over, mjóg óspennandi, horfðum á Disturbia ég og Malina sváfum alla mynina... Svo var vikan bara hangs með vinum og jólagjafa innkaup, er næstum búin að kaupa allar jólagjafirnar, á þrjár eftir plús þær sem ég þarf að kaupa fyrir fólk hér. Svo var Thanksgiving á fimmtudaginn 22. nóv. og var hún heima hjá okkur og var u.þ.b. 12 manns, maturinn var ljúfengur þótt að pican pie sé eitt af því versta sem ég hef smakkað í minni lífstíð. Eftr matin stein sofnaði ég í sófanum, það er víst eitthvað efni í kalkún sem gerir mann þreyttan...skrítið. Ég tók nokkrar myndir frá thanksgiving so check it out.
 Setja vondu bökuna inn í ofninn....  Setja góða kalkúninn inn í ofninn...
 Og svo skera góða kalkúninn...
- Ég fór líka 4 sinnum í bíó í fríinu, og þar sá ég The Mist sem er án efa með verri myndum sem ég hef séð, hló mig mátlausa á Henni, semsagt ekki fara á hana. Sá Enchanted sem er mest adorable mynd sem ég hef séð í langan. Fred Clause er ekki góð og sá svo 30 day of night aftur. En herðu eftir Enchanted ákváðum ég og vinkonur mínar að fara að fá okkur að borða, við vorum í einhverju hyper skapi og ákváðum að fara á Hooters, ég veit ekki hversu margir af ykkur vitið hvað það er en það er saður þar sem þjónustu stúlkurnar klæðast ekkert voðalega miklu...karlmenn finnst mjög gaman að fara þangað....maturinn var allavega mjög vondur. En þetta var skemmtileg lífsreynsla  - Lara er farinn back to Germany....leiðinlegt  - Chanukka byrjar 5. des. og þar sem fjölskyldan mín hér eru gyðingar höldum við upp á það, það verður skemmtilegt. Og það sem gyðingar gera á jóladag hér er að borða kínverskan og fara í bíó...það verður skemmtilegt  - Ég fékk bréf um daginn um Gradnight um daginn. Gradnight er semsagt fyrir seniors um alla Californiu þar sem the senior class fer yfir nótt í Disney Land, og er ýmislegt að gerast þar, þar á meðal hljómsveitir og alles, þetta er semsat 16 Maí. Ekkert athugavert við þetta nema reglur um klæðaburð sem fylgdu með bréfinu. Hér er dresscode-ið: LADIES: dresses, skirt or pants with appropriate top, sweaters, sweatshirt or jacktet, and comfortable shoses. GENTLEMEN: trousers, shirts, sweater, sweatshirt or jacket, and comfortable shoses. UNACCEPLABLE: any clothing affiliated with a shcool, sports team, group, club, etc, jeans of any color or style, extremely revealing clothing, hats, backpackts, fanny pack, flip-flops, camera bags, oversized purses, weapons, knives, chemical irritants of any kind, laser pointers, food or beverage, prescription medication, over the counter medication, alcohol, and tobacco products. Já fólk ég má ekki vera í gallabuxum í disneylandi en ég á vera í kjól, ég má einnig ekki vera með tösku. Mér finnst nú bara skrítið að þau segji manni ekki hvernig nærfötum maður megi klæðast! -HAWAI EFTIR 10 DAGA OMG OMG OMG OMG.....! - Í dag er sunnudagur...allavega hjá mér. Og í gær var laugardagurinn 1. Des. semsagt Formal var í gær sem var úber skemmtilegt skal ég segja ykkur....allaveg svona var gærdagurinn hjá mér: Ég vaknaði klukkan 8 fór í sturtu og gerði allt sem ég gat áður en ég fór til Selma sem er bær fyrir utan Fresno í 80 ára afmæli "ömmu" minnar. Þar var mikið af gömlu fólki. Ég var þar til klukkan hálf þrjú, því ég þurfti að fara að ná í kjólinn minn klukkan 3. Ég þurfti að láta stytta hann svo ég fór með hann á einhverja stofu og það var þvílíkt rip-off kostaði mig 50$. Svo kom Melanie til mín og gerði hárið á mér, í voða fínar krullur. Svo var ég á met hraða að mála mig í framan og gera allt sem gera þurfti áður en Garrett kom að ná í mig klukkan fimm. Síðan lá leiðin til Brians þar sem hópurinn hittist og myndir voru teknar. Síðan fórum við í limmuna og að borða á Claim Jumber, sem var svo ógeðslega góður að orð eiga erfitt með að lísa því. Síðan fórum við í limmuna og rúntuðum aðeins um því að við urðum að vera Fashionably late á ballið....síðan var ballið sem var svo ógeðslega skemmtileg, það toppar því miður ekki Grímuballið í fyrra en það er jafnt við Eplaballið 2006. Herðu svo held ég líka að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem ég dansaði við sömu manneskjuna allt ballið, ég held að það sé eitthvað sem er ekki þekkt hjá mér á kvennó böllum. Svo koma myndir:  Ég og Garrett...já ég veit ég er hvít eins og ég veit ekki hvað....
 Ég, Mallory, Juulia, Jenny og Yoko
 Garrett, Steven, Brian, Kody og Kyle
 Kjóllinn minn sést best á þessari mynd...annars allur hópurinn
 Einhver af mömmunum að hjálpa mér að setja blómið á Garrett, því ég hafði ekki glóru um hvernig átti að gera það....
 Og svo ég að þykjast setja það á hann 
 Corchasið mitt og Juuliu
 Já herðu foreldrarnir vildu endilega fá eina svona fake dancing mynd....
 Mér var kallt svo ég fékk jakkan hans Garretts í láni
 Ok svo smá humor í gangi hér, allir strákarnir fengu sér smekki því þeir fengu sér einhverjar þvílíkar steikur, svo Garrett ákvað að hann þyrfti hjálp við að binda sinn....þetta var doldið fyndið.
 Ég og Yoko
 Ég og Juulia
 Ég og Jenny....
 Og svo ég og Garrett eftir ballið á leiðinni heim....
Svo eru fleriri myndir í myndir USA... -Allavegana þá er ekki mikið meira sem ég man eftir í augnablikinu, ein vika eftir hjá mér af skólanum, svo eru Finals eða þau sem ég tek allavegana og svo FRÍ! HELL YEAH! - En áður en ég kveð er eitt að lokum: ÉG VIL FÁ FOKKING KOMMENT!!!!!!!! og hananú! Kv. Vala Svala...Tala  P.S. Herðu og þið vitið þegar það er talað um að allir skiptinemar bæti á sig nokkrum kílóum á meðan þeir eru út....ég er ekki búin að bæta á mig heldur missa nokkur
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 46648
|